Sálmur 96:1–13
96 Syngið Jehóva nýjan söng.+
Lofsyngið Jehóva, allir jarðarbúar!+
2 Syngið fyrir Jehóva, lofið nafn hans.
Boðið gleðifréttirnar um frelsun dag eftir dag.+
3 Segið frá dýrð hans meðal þjóðanna,undraverkum hans meðal allra manna.+
4 Jehóva er mikill og verðskuldar lof,hann er mikilfenglegri en allir aðrir guðir.
5 Allir guðir þjóðanna eru einskis nýtir+en Jehóva er sá sem skapaði himininn.+
6 Hann er umlukinn tign og ljóma,+máttur og fegurð er í helgidómi hans.+
7 Veitið Jehóva verðskuldað lof, þið ættir þjóðanna,lofið Jehóva fyrir dýrð hans og mátt.+
8 Veitið Jehóva það lof sem nafn hans á skilið,+komið með gjöf í forgarða hans.
9 Fallið fram fyrir* Jehóva í helgum skrúða,*öll jörðin skjálfi frammi fyrir honum.
10 Boðið meðal þjóðanna: „Jehóva er orðinn konungur!+
Jörðin* stendur stöðug, hún haggast ekki.
Hann dæmir þjóðirnar* af sanngirni.“+
11 Himnarnir fagni og jörðin gleðjist,hafið drynji og allt sem í því er,+
12 sáðlöndin fagni og allt sem á þeim er+og öll tré skógarins hrópi af gleði+
13 frammi fyrir Jehóva því að hann kemur,*hann kemur til að dæma jörðina.
Hann dæmir heimsbyggðina með réttlæti+og þjóðirnar af trúfesti.+
Neðanmáls
^ Eða „Tilbiðjið“.
^ Eða hugsanl. „vegna ljómans af heilagleika hans“.
^ Eða „Frjósamt landið“.
^ Eða „flytur mál þjóðanna“.
^ Eða „er kominn“.