Jesaja 32:1–20
32 Konungur+ mun ríkja með réttlæti+og höfðingjar stjórna með réttvísi.
2 Hver og einn verður eins og skjól fyrir vindiog skýli* í slagviðri,eins og lækir í vatnslausu landi,+eins og skuggi af stórum hamri í skrælnuðu landi.
3 Þá verða augu hinna sjáandi ekki lengur límd afturog eyru þeirra sem heyra munu hlusta.
4 Hjörtu hinna fljótfæru gefa þekkingunni gaumog stamandi tunga talar reiprennandi og skýrt.+
5 Heimskinginn kallast ekki lengur örláturog siðspilltur maður verður ekki talinn göfugmenni.
6 Heimskinginn fer með tómt þvaðurog upphugsar illt í hjarta sínu+til að ýta undir fráhvarf* og mæla gegn Jehóva með þrjósku.
Hann lætur svangan mann hungraog neitar þyrstum um vatn að drekka.
7 Ráðagerðir hins siðspillta eru illar,+hann ýtir undir blygðunarlausa hegðuntil að brjóta hinn bágstadda niður með lygum+þó að hann fari með rétt mál.
8 En örlátur maður hefur unun af að gefaog heldur sig við það sem er göfugt.*
9 „Þið sjálfumglöðu konur, standið upp og hlustið á mig!
Þið áhyggjulausu dætur,+ gefið gaum að því sem ég segi!
10 Eftir rúmt ár munuð þið sem eruð áhyggjulausar skjálfaþví að vínuppskerutíminn líður án þess að nokkuð hafi verið tínt.+
11 Skelfist, sjálfumglöðu konur!
Skjálfið, þið sem eruð áhyggjulausar!
Klæðið ykkur úrog bindið hærusekk um mjaðmirnar.+
12 Berjið ykkur á brjóst og kveiniðyfir unaðslegum ökrunum og frjósömum vínviðnum.
13 Þyrnar og þistlar munu þekja land þjóðar minnar,þeir hylja öll hús þar sem gleðin ríkti,já, borg fagnaðarins.+
14 Víggirtur turninn er yfirgefinn,iðandi borgin liggur í eyði.+
Ófel+ og varðturninn verða auðn um alla framtíð,villiösnum til ánægju,beitiland handa búfé,+
15 þar til Guð úthellir anda sínum yfir okkur,+óbyggðirnar verða að aldingarðiog aldingarðurinn er álitinn skógur.+
16 Þá mun réttvísin setjast að í óbyggðunumog réttlætið búa í aldingarðinum.+
17 Ósvikið réttlæti skapar frið+og ávöxtur réttlætisins verður varanlegt öryggi og ró.+
18 Fólk mitt mun búa í friðsælu landi,í öruggu húsnæði og á kyrrlátum hvíldarstöðum.+
19 En skógurinn fellur fyrir hagliog borgin verður jöfnuð við jörðu.
20 Þið sem sáið við öll vötn eruð hamingjusöm,þið sem hleypið út nautinu og asnanum.“+