Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Spekin kallar – heyrir þú í henni?

Spekin kallar – heyrir þú í henni?

„Heyr, spekin kallar og hyggnin lætur raust sína gjalla. Uppi á hæðunum við veginn, þar sem göturnar kvíslast – stendur hún ... þar sem gengið er inn um dyrnar, kallar hún hátt.“ – ORÐSKVIÐIRNIR 8:1-3, Biblían 1981.

SPEKI er ómetanleg. Án hennar myndum við gera hver mistökin á fætur öðrum. En hvar er sanna speki að finna? Ritari Orðskviðanna hafði í huga óviðjafnanlega speki skapara okkar. Hún er aðgengileg hér um bil öllum mönnum í afar einstakri bók, Biblíunni. Íhugaðu eftirfarandi:

  • Biblían er „útbreiddasta bók sögunnar,“ segir í The World Book Encyclopedia. „Hún hefur verið þýdd oftar og á fleiri tungumál en nokkur önnur bók.“ Biblían er nú fáanleg, í heild eða að hluta, á næstum 2.600 tungumálum og er þar með aðgengileg yfir 90 prósentum mannkyns.

  • Spekin „kallar“ líka í bókstaflegri skilningi. Í Matteusi 24:14 lesum við: „Fagnaðarerindið um ríkið verður prédikað um alla heimsbyggðina til þess að allar þjóðir fái að heyra það. Og þá mun endirinn [á núverandi heimskerfi] koma.“

„Fagnaðarerindið“ er sönn speki því að það vísar til lausnar Guðs á vandamálum mannkyns en sú lausn er ríki hans. Þetta ríki er stjórn Guðs sem mun ríkja yfir allri jörðinni. Heimurinn verður þá sameinaður undir einni stjórn. (Daníel 2:44; 7:13, 14) Þess vegna bað Jesús Kristur: „Til komi þitt ríki, verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni.“ – Matteus 6:9, 10.

Vottar Jehóva telja það mikinn heiður að boða ríki Guðs í 239 löndum. Já, spekin – speki Guðs – „kallar“. „Þar sem gengið er inn um dyrnar, kallar hún hátt.“ Heyrir þú í henni?