Þegar maður er alvarlega veikur
EF ÞÚ, eða ástvinur þinn, hefur verið greindur með lífshættulegan sjúkdóm veistu hversu mikið álag fylgir því. Auk sjúkdómsins sjálfs þarf að glíma við erfiðar tilfinningar. Ótti og kvíði getur margfaldast vegna taugatrekkjandi læknisheimsókna, erfiðleika við að komast í eða borga fyrir læknismeðferð eða slæmra aukaverkana af lyfjum. Sálarangistin sem fylgir alvarlegum veikindum getur verið yfirþyrmandi.
Hvar getum við leitað hjálpar? Margir hafa fundið hughreystingu með því að reiða sig á bænina og lesa uppörvandi kafla í Biblíunni. Við getum
líka fengið hjálp og stuðning frá fjölskyldu okkar og vinum.ÞAÐ SEM HEFUR HJÁLPAÐ MÖRGUM
„Ef þú tekst á við sjúkdóminn með trausti á Guð mun hann hjálpa þér,“ segir Robert sem er 58 ára. „Leitaðu til Jehóva í bæn. Segðu honum hvernig þér líður. Biddu hann um að gefa þér af anda sínum. Og biddu hann líka um styrk til að þú getir verið hvetjandi við fjölskyldu þína og haldið ró þinni í gegnum veikindin.“
„Það er mikils virði að finna fyrir stuðningi fjölskyldunnar. Ég fæ símtöl á hverjum degi frá vinum sem spyrja hvernig ég hafi það. Ég fæ hvatningu frá vinum héðan og þaðan. Það léttir mér lundina og hjálpar mér að gefast ekki upp.“
Ef þú ert að heimsækja veikan vin er Linda með gott ráð fyrir þig: „Sjúklingurinn vill örugglega eiga eins eðlilegt líf og hægt er. Og hann vill eflaust ekki að allar samræður snúist um veikindin. Það er því best að tala um það sem þið talið venjulega um.“
Með hjálp frá Guði og uppörvun úr orði hans ásamt stuðningi vina og fjölskyldu getum við verið örugg um að lífið sé erfiðisins virði – jafnvel þótt við glímum við alvarleg veikindi.