Hvernig opinberar skaparinn loforð sín?
Skaparinn hefur átt samskipti við fólk fyrir milligöngu engla og spámanna allt frá sköpun mannkyns. Auk þess kaus hann að láta rita niður boðskap sinn og loforð. Þessi loforð Guðs hafa áhrif á framtíð okkar. En hvar finnum við loforð Guðs?
Boðskap Guðs til okkar er að finna í Ritningunni. (2. Tímóteusarbréf 3:16) Hvernig lét Guð spámenn skrá boðskapinn? Hann flutti hugsanir sínar í huga ritaranna sem skrifuðu þær síðan niður. (2. Pétursbréf 1:21) Það er ekki ólíkt því þegar forstjóri lætur ritara skrifa bréf fyrir sína hönd. Við lítum samt á forstjórann sem höfund bréfsins. Á svipaðan hátt er Guð í raun höfundur Ritningarinnar þó að hann hafi látið menn skrifa boðskapinn.
ORÐ GUÐS ER MJÖG ÚTBREITT
Boðskapur Guðs er svo mikilvægur að hann vill að allir lesi hann og skilji. Nú er ,eilífur fagnaðarboðskapur‘ hans aðgengilegur „hverri þjóð, ættflokki [og] tungumáli“. (Opinberunarbókin 14:6, neðanmáls) Vegna blessunar Guðs er Ritningin aðgengileg í heild eða að hluta á meira en 3.000 tungumálum. Engin önnur bók veraldar er til á jafn mörgum tungumálum.