SÖNGUR 134
Ykkur er trúað fyrir börnunum
-
1. Þegar karlmaður og kona
eignast kornabarn það umbun er hrein.
En hugfast báðum ber að hafa
þau eiga barnið ekki ein.
Jehóva gjöf þeim hefur gefið
sem lífsins Guð og skapari hvers manns.
Hann veitir foreldrunum fræðslu,
þeim ber að fylgja vel leiðsögn hans.
(VIÐLAG)
Þið hafið fengið heilagt hlutverk,
í ykkar höndum er nýtt líf.
Að fræða barn um boðskap Drottins,
það veitir blessun hans og hlíf.
-
2. Öll þau boð, sem Guð þinn gefur,
eru gersemar og aldrei þeim gleym.
Við börnin tíðum um þau talir
því þér er trúað fyrir þeim.
Á þínum ferðum fræddu börnin,
er ferð á fætur og er hvílist þú.
Þau boð Guðs megi ætíð muna,
hans blessun megi þau hljóta trú.
(VIÐLAG)
Þið hafið fengið heilagt hlutverk,
í ykkar höndum er nýtt líf.
Að fræða barn um boðskap Drottins,
það veitir blessun hans og hlíf.
(Sjá einnig 5. Mós. 6:6, 7; Ef. 6:4; 1. Tím. 4:16.)