SÖNGUR 5
Undursamleg verk Guðs
-
1. Guð veit hvort sef ég eða vaki,
hann þekkir vegu mína mætavel.
Hann kannar hug minn, tilhneigingar hjartans,
og skoðar hugrenningar,
orðin mín og þel.
Og eins er ég varð til í leyndum
þá bein mín aldrei duldust þinni sjón.
Þú sást mig þegar ómyndað var efni,
þú birtir undursamleg verk þín
hverjum þjón.
Þín þekking mikil undursamleg er mér,
það veit ég innra að þú veitir svar.
Ef óttiʼ og myrkur umlykti mig allan
þinn góði andi fyndi mig fljótt þar.
Hvar get ég falist fyrir Guði?
Hvert gæti flúið augliti hans frá?
Það veit ég, hvorki himna til né helju
né ysta hafs, hann er mér
öllum stundum hjá.
(Sjá einnig Sálm 66:3; 94:19; Jer. 17:10.)