Eru illir andar til?
Svar Biblíunnar
Já, illir andar eru ,englar sem syndguðu‘, andaverur sem gerðu uppreisn gegn Guði. (2. Pétursbréf 2:4) Fyrsti engillinn, sem gerði sig að illum anda, var Satan djöfullinn. Biblían kallar hann „höfðingja illra anda“. – Matteus 12:24, 26.
Uppreisn á dögum Nóa
Í Biblíunni segir frá englum sem gerðu uppreisn fyrir flóðið á dögum Nóa: „Þá sáu synir Guðs hve dætur mannanna voru fagrar. Þeir tóku sér þær konur sem þeir lögðu hug á.“ (1. Mósebók 6:2) Þessir illu eða föllnu englar „yfirgáfu eigin bústað“ á himnum og mynduðu sér efnislega líkama til þess að hafa mök við konur. – Júdasarbréfið 6.
Þegar flóðið kom fóru þessir uppreisnargjörnu englar úr mannslíkömum sínum og sneru aftur til himna. Guð gerði þá ræka úr fjölskyldu sinni. Refsingin fólst einnig í því að illu andarnir gátu aldrei framar myndað sér mannslíkama. – Efesusbréfið 6:11, 12.